Flýtilyklar
Músíksmiðja
Markmið:
Markmiðið er að opna hug barnanna fyrir tónlist með ýmsum hætti, svo sem söng, rytmík, samleik á
ásláttarhljóðfæri, hlustun og ýmiskonar fræðslu.
Einnig að leggja grunn að frekara tónlistarnámi og kynna fyrir börnunum hin ýmsu hljóðfæri þannig að í lok námskeiðsins
verði þau hæfari til að ákveða hvaða hljóðfæri þau vilja einbeita sér að í framtíðinni.
Kennslutilhögun:
Kennt er í formi námskeiða sem standa yfir í 12 vikur á haustönn. Sama fyrirkomulag gildir á vorönn. Kennsluform er hópkennsla, 4-6 saman
í tíma.
Hver kennslustund er 40 mínútur einu sinni í viku.
Um námið:
Nemendur fá að kynnast öllum algengum hljóðfærum á lifandi hátt, þannig
að í kennslustundum er kynnt til sögunnar hljóðfæri dagsins sem þau síðan fá sjálf að prófa eftir
því sem við á.
Farið verður í hreyfileiki og spuna og spilað saman á ásláttarhljóðfæri til að þjálfa taktskyn barnanna.
Einnig verður byrjað að kenna þeim nótnalestur og læra þau nótu dagsins í hverri kennslustund.
Við hlustum saman á margskonar tónlist og segjum börnunum frá þekktum tónskáldum.
Nemendur læra innlend og erlend sönglög og verða æfðir í framburði texta á íslensku og öðrum tungumálum.
Farið verður í undirstöðuatriði í sviðsframkomu (performance) og kennt að syngja í hljóðnema við undirleik.