Flýtilyklar
Hljóðfæradeild
Markmið:
Að auka fjölbreytni í tónlistarkennslu, gefa sem flestum tækifæri til hljóðfæranáms og
samspils og auka þannig menntun og færni fólks á tónlistarsviðinu. Við leggjum áherslu á að nemendur fái tækifæri til
að læra á hljóðfæri á sínum eigin forsendum, sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Kennt er á eftirtalin hljóðfæri:
• Gítar / rafgítar
• Rafbassa
• Píanó/hljómborð
• Harmóníku
• Fiðlu
• Trommur (trommusett) Slagverk
Söngkennsla almennur söngur
Hægt er að óska eftir öðrum hljóðfærum, og það tekið til atugunar.
Kennslutilhögun:
Kennt er í formi námskeiða sem standa yfir í 14 vikur á haustönn og 14 vikur á vorönn. Hver kennslustund er 50 mínútur einu sinni
í viku.
Um námið:
Námið hentar bæði byrjendum og þeim sem lengra eru komnir. Kennslan fer fram í litlum hópum sem raðað er í eftir aldri og getu. Hægt er
að sækja um einkakennslu.