Flýtilyklar
Fréttir
Vorönn að ljúka
Almennt - sunnudagur 2.maí.10 18:46 - Lestrar 200 - Athugasemdir (0)Nú er vorönnin í Tónræktinni senn á enda.
Tónleikar verða á Græna hattinum 3. maí og í þetta skipti eru nemendur svo margir, að skipta verður tónleikunum í tvennt, þ.e. þeir fyrri verða kl.17.00 og þeir seinni kl. 19.00.
Að venju verða tónleikarnir fjölbreyttir og kynnar að þessu sinni verða Jana María Guðmundsdóttir og Magni Ásgeirsson, kennarar við skólann. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Við erum mjög ánægð með starfið í vetur og þökkum nemendum og kennurum innilega fyrir gott og skemmtilegt samstarf!
Með sumarkveðju,
Bassi og Sigga
Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.