Flýtilyklar
Fréttir
Nokkur laus pláss!
Almennt - þriðjudagur 2.feb.10 12:00 - Lestrar 323 - Athugasemdir (0)Um leið og við óskum öllu því frábæra fólki sem hér hefur verið við nám og störf alls hins besta á nýju ári og þökkum frábært samstarf á liðnum árum, viljum við vekja athygli á að við höfum pláss fyrir nokkra nemendur: Unga nemendur í gítar, 7 - 9 ára, hljómborð, 7 - 12 ára og í Músíksmiðju 4 - 7 ára.
Sem áður leggjum við áherslu á heimilislegt og vinalegt umhverfi. Enginn stofnanabragur hér : )
Námskeið í upptökutækni og hljóðvinnslu hefjast um miðjan febrúar. Þetta eru námskeið sem hafa nýst fólki mjög vel, frábær kennari, Brynleifur Hallsson og sanngjarnt verð! Nemendur eru aldrei fleiri en 2 saman. (Nánar auglýst í Dagskránni og Extra N4).
Einn nýr kennari bættist í hópinn eftir áramót. Hún heitir Jana María Guðmundsdótti, söng- og leikkona og kennir auðvitað....Söng : )
Svo erum við komin á facebook!