Flýtilyklar
Fréttir
Jólatónfundir
Almennt - fimmtudagur 10.des.09 15:09 - Lestrar 415 - Athugasemdir (0)Góðan daginn!
Nú er haustnámskeið Tónræktarinnar að renna sitt skeið. Nemendur og kennarar hafa unnið frábært starf og gleði, áhugi og framfarir hafa einkennt skólastarfið.
Á morgun, föstudaginn 11. desember frá kl. 15.00 verður tónfundur hjá söngnemendum hér Í Tónræktinni, en á laugardag þann 12. des. frá kl. 13.00 hjá hljóðfæranemendum.
Við þökkum fyrir frábært samstarf á önninni og minnum nemendur, sem ætla að vera áfram á vorönn, á að fylla út nýja umsókn. Nýir nemendur geta að sjálfsögðu einnig sent okkur umsókn á heimasíðunni tonraektin.is
Vorönnin hefst þann 18. janúar 2010. Hlökkum til að sjá ykkur!
Besu jóla- og nýárskveðjur,
Kennarar Tónræktarinnar,
Bassi, Billi, Andri, Ívar, Ingvi, Helga, Magni, Bryndís og Sigga. : )
Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.