Flýtilyklar
Fréttir
Líf og fjör í Tónræktinni
Almennt - þriðjudagur 13.okt.09 15:29 - Lestrar 531 - Athugasemdir (0)Nú er tónlistarkennslan í Tónræktinni í algleymingi. Þrátt fyrir kreppu og aðra óáran (eins og svínaflensu t.d....) höldum við ótrauð okkar striki og nemendafjöldinn er svipaður og í fyrra, reyndar eru ívið fleiri nemendur nú en á sama tíma fyrir ári. Við erum mjög ánægð með það. Skólagjöldin eru þau sömu og í fyrra.
Okkur barst liðsauki í haust í söng- og gítarkennslu, en það eru þau Bryndís Ásmundsdóttir, söngkona og leikkona og Magni Ásgeirsson söngvari og gítarleikari. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin. Þau eru bæði mjög flínk og falla vel inn í kennarahópinn og nemendurnir fíla þau alveg í botn! (afsakið slettuna.)
Síðan erum við svo heppin að hafa áfram okkar frábæru kennara; Ívar með hljómborðið, Billa og Andra sem sjá um gítarkennslu ásamt Magna, Helgu Kvam með Músíksmiðjuna og flautukennslu, sem er nýtt hérna hjá okkur, og Ingvi er með slagverkið. Bassi er svo með píanó, gítar, söng og harmóníku.
Sem sagt; það svífur hér léttur andi yfir vötnunum!
SBG