Tónræktin

tónlistarkennsla tónlist tónlistarskóli

Flýtilyklar

Velkomin(n)


Markmið Tónræktarinnar er að gefa sem flestum kost á fjölbreyttu og skemmtilegu tónlistarnámi.

 


  • Við kennum nemendum að spila bæði eftir nótum og eftir eyranu. Einnig hljómalestur og útsetningar.

  • Tónfræði er fléttað inn í námið í tengslum við það sem verið er að fást við hverju sinni, en ekki kennd sem sér námsgrein.

  • Nám í Tónræktinni hentar fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á að leika á hljóðfæri, sér og öðrum til gagns og ánægju.
__________________________________________________________________________________________

Nýjustu fréttir

  • Vorönn að ljúka

    Almennt - sunnudagur 2.maí.10 18:46 - Lestrar 150 - Athugasemdir (0)

    Nú er vorönnin í Tónræktinni senn á enda.

    Tónleikar verða á Græna hattinum 3. maí og í þetta skipti eru nemendur svo margir, að skipta verður tónleikunum í tvennt, þ.e. þeir fyrri verða kl.17.00 og þeir seinni kl. 19.00.

    Að venju verða tónleikarnir fjölbreyttir og kynnar að þessu sinni verða Jana María Guðmundsdóttir og Magni Ásgeirsson, kennarar við skólann. Allir eru hjartanlega velkomnir.

    Við erum mjög ánægð með starfið í vetur og þökkum nemendum og kennurum innilega fyrir gott og skemmtilegt samstarf!

     

     Með sumarkveðju,

     Bassi og Sigga

     

     


  • Nokkur laus pláss!

    Almennt - þriðjudagur 2.feb.10 12:00 - Lestrar 275 - Athugasemdir (0)

    Um leið og við óskum öllu því frábæra fólki sem hér hefur verið við nám og störf alls hins besta á nýju ári og þökkum frábært samstarf á liðnum árum, viljum við vekja athygli á að við höfum pláss fyrir nokkra nemendur: Unga nemendur í gítar, 7 - 9 ára, hljómborð, 7 - 12 ára og í Músíksmiðju 4 - 7 ára.

    Sem áður leggjum við áherslu á heimilislegt og vinalegt umhverfi. Enginn stofnanabragur hér : )

    Námskeið í upptökutækni og hljóðvinnslu hefjast um miðjan febrúar. Þetta eru námskeið sem hafa nýst fólki mjög vel, frábær kennari, Brynleifur Hallsson og sanngjarnt verð! Nemendur eru aldrei fleiri en 2 saman. (Nánar auglýst í Dagskránni og Extra N4).

    Einn nýr kennari bættist í hópinn eftir áramót. Hún heitir Jana María Guðmundsdótti, söng- og leikkona og kennir auðvitað....Söng : )

    Svo erum við komin á facebook!

     

     


  • Jólatónfundir

    Almennt - fimmtudagur 10.des.09 15:09 - Lestrar 368 - Athugasemdir (0)

    Góðan daginn!

    Nú er haustnámskeið Tónræktarinnar að renna sitt skeið. Nemendur og kennarar hafa unnið frábært starf og gleði, áhugi og framfarir hafa einkennt  skólastarfið.

    Á morgun, föstudaginn 11. desember frá kl. 15.00 verður tónfundur hjá söngnemendum hér Í Tónræktinni, en á laugardag þann 12. des. frá kl. 13.00 hjá hljóðfæranemendum.

     Við þökkum fyrir frábært samstarf á önninni og minnum nemendur, sem ætla að vera áfram á vorönn, á að fylla út nýja umsókn. Nýir nemendur geta að sjálfsögðu einnig sent okkur umsókn á heimasíðunni  tonraektin.is

     Vorönnin hefst þann 18. janúar 2010. Hlökkum til að sjá ykkur!

     

    Besu jóla- og nýárskveðjur,

    Kennarar Tónræktarinnar,

    Bassi, Billi, Andri, Ívar, Ingvi, Helga, Magni, Bryndís og Sigga. : )  

     


  • Líf og fjör í Tónræktinni

    Almennt - þriðjudagur 13.okt.09 15:29 - Lestrar 481 - Athugasemdir (0)

    Nú er tónlistarkennslan í Tónræktinni í algleymingi. Þrátt fyrir kreppu og aðra óáran (eins og svínaflensu t.d....) höldum við ótrauð okkar striki og nemendafjöldinn er svipaður og í fyrra, reyndar eru ívið fleiri nemendur nú en á sama tíma fyrir ári. Við erum mjög ánægð með það. Skólagjöldin eru þau sömu og í fyrra.

    Okkur barst liðsauki í haust í söng- og gítarkennslu, en það eru þau Bryndís Ásmundsdóttir, söngkona og leikkona og Magni Ásgeirsson söngvari og gítarleikari. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin. Þau eru bæði mjög flínk og falla vel inn í kennarahópinn og nemendurnir fíla þau alveg í botn! (afsakið slettuna.)

    Síðan erum við svo heppin að hafa áfram okkar frábæru kennara; Ívar með hljómborðið, Billa og Andra sem sjá um gítarkennslu ásamt Magna, Helgu Kvam með Músíksmiðjuna og flautukennslu, sem er nýtt hérna hjá okkur, og Ingvi er með slagverkið. Bassi er svo með píanó, gítar, söng og harmóníku.

     Sem sagt; það svífur hér léttur andi yfir vötnunum!

    SBG


  • Haustnámskeið

    Almennt - miðvikudagur 26.ágú.09 16:51 - Lestrar 650 - Athugasemdir (0)

     Góðan daginn!

    Haustnámskeið Tónræktarinnar hefjast í vikunni 14. til 18. september.

    Sótt er um hér á heimasíðunni og haft verður samband við nemendur þegar nær dregur varðandi tímasetningar.

     


Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf